Fjörið heldur áfram og nú þurfum við að vinna í Krikanum

Brynjólfur Snær BrynjólfssonStrákarnir sýndu allar sínar bestu hliðar í leiknum í Schenkerhöllinni á sunnudaginn og unnu stórsigur á FH. Margir sögðu að þetta væri liðið sem þeir þekktu og Haukafólk brosti breitt.
Í kvöld, þriðjudag, heldur rimman áfram og við erum enn með bakið við vegginn, sem strákunum virðist líka vel við. Áhorfendur voru stórkostlegir á sunnudaginn og með þessa stemmningu eru okkur allir vegir færir. Leikurinn í Krikanum hefst kl. 19:45 og nú mæta allir og láta vel í sér heyra. Mætum í rauðu.

Áfram Haukar!