Haukar mæta HK í kvöld!

HaukarÞað er þétt spilað í N1-deild karla í handbolta þessa dagana og er þriðji leikurinn á undanfarinni viku á dagskrá í kvöld. Haukar á móti HK í Schenkerhöllinni og hefst leikurinn kl.19:30.

Þetta eru, eins og menn eflaust muna, liðin sem mættust í undanúrslitaeinvíginu í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra en þá fóru HK-menn með öruggan sigur af hólmi 3-0 í leikjum talið.

Liðin hafa þegar mæst tvisvar á þessari leiktíð, í haust gerðu þau jafntefli í Schenkerhöllinni en svo unnum við Haukar síðasta leik liðanna sem fór fram uppi í Digranesi, heimavelli HK.

Það er mikið undir í kvöld, og þá sérstaklega fyrir gestina sem þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að þoka sér frá botnbaráttunni og koma sér í alvöru baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Okkar strákar eiga hins vegar möguleika á að koma sér virkilega vel fyrir í efsta sæti deildarinnar og því leikurinn ekki síður mikilvægur fyrir okkar drengi. Allir á völlinn!