Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • BIKARMEISTARAR 2006

    Já stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur í bikarúrslitum á móti ÍBV í Höllinni í dag og launin voru frábær: Bikarmeistarar 2006. Leikurinn var jafn í byrjun en undir lok fyrri hálfleiks náðu stelpurnar okkar tökum á leiknum og í hálfleik var staðan 12-10 fyrir Hauka. Í síðari hálfleik leiddu Haukar leikinn en ÍBV náði að…

  • HAUKADAGUR Í HÖLLINNI

    Laugardaginn 25. febrúar leika bæði karla- og kvennalið Hauka til úrslita í bikar. Stelpurnar gegn ÍBV og strákarnir gegn Stjörnunni. Þetta er í þriðja sinn sem Haukar fara með bæði liðin í Bikarúrslit sem er einsdæmi. Klukkan 10 til 12 er upphitun á Ásvöllum, andlistmálun og glens og gaman, (saman). Klukkan tólf verða rútuferðir í…

  • Haukar-Fram mfl.kvenna

    Allan neista vantaði í spilamennskuna hjá stelpunum okkar í dag er þær unnu Fram 31-30 á Ásvöllum í dag. Stigin tvö voru frábær en ekki er hægt að segja það sama um leikinn hjá þeim, þær áttu skelfilega dapran dag og miðað við spilamennskuna voru þær heppnar að ná stigunum. Fram byrjaði betur og skoraði…

  • Haukar-Valur mfl.karla

    Strákarnir okkar unnu frábæran sigur á Val á Ásvöllum í kvöld 33-28. Haukar skoruðu fyrsta markið, Valur jafnaði 1-1, Haukar áttu næstu tvö mörk 3-1 og héldu forystunni eftir það. Um miðjan fyrri hálfleik tóku þeir völdin og leiddu með sex mörkum í hálfleik. 19-13. Í síðari hálfleik slökuðu okkar menn á og Valur sótti…

  • Birkir Ívar í atvinnumennskuna

    Okkar frábæri markmaður, Birkir Ívar hefur gengið frá 2ja ára samningi við þýska liðið Tus-N-Lübbecke. Bikir Ívar yfirgefur herbúðir Hauka í vor og heldur á vit ævintýranna og mun spila í Bundesligunn næsta vetur. Haukar munu kveðja Birki Ívar með miklum söknuði en jafnframt óskum við honum góðs gengis í atvinnumenskunni. Þetta er frábært tækifæri…

  • Haukar í Höllina

    Handboltaveislan á Ásvöllum í gær var hreint frábær. Bæði liðin okkar tryggðu sér sæti í úrslitum SS-Bikarsins. Stelpurnar unnu Gróttu 25-22 og strákarnir unnu Fram 30-27. Tveir glæsilegir sigrar og alveg meiri háttar að fara með bæði liðin í Höllina. Takið frá laugardaginn 25. febrúar því þá verður sannkallaður Haukadagur í Höllinni: Haukar – ÍBV…

  • Handboltaveisla á laugardaginn

    Á laugardaginn verður sannkölluðu handboltaveisla á Ásvöllum en þá fara fram undanúrslit SS bikarsins bæði í mfl. karla og mfl. kvenna. kl. 14:00 Haukar – Grótta mfl. kvenna kl. 16:15 Haukar – Fram mfl. karla Við hvetjum alla til að mæta og styðja liðin okkar til úrslita í Höllina. ÁFRAM HAUKAR

  • Herrakvöld Hauka

    Herrakvöld Hauka verður haldið hér á Ásvöllum föstudaginn 17. febrúar. Deildir félagsins standa sameiginlega að skemmtuninni og er búist við mikilli þátttöku. Aðalræðumaður kvöldsins verður Árni Johnsen og Jóhannes Kristjánsson fer með gamanmál að sinni alkunnu snilld. Glæsilegur matseðill verður í boði og er miðaverð aðeins kr. 2500. Er mönnum ráðlegt að tryggja sér miða…