Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Skjern á Íslandi

    Skjern, lið Haukamannanna Arons Kristjánssonar og Vignis Svavarssonar, er þessa dagana á Íslandi. Liðið hefur verið við æfingar á Laugarvatni og munu enda ferðina með því að spila æfingaleik við meistaraflokk Hauka á föstudag klukkan 19:30 á Ásvöllum. Mætum öll og sjáum hvernig liðið okkar kemur undan sumri og sjáum okkar stráka í Danaveldi spila…

  • Ungmennalið Hauka spilar í 1. deild

    Undanfarin ár hefur Handknattleiksdeild Hauka náð góðum árangri á Íslandsmótinu í handknattleik bæði í karla og kvennaflokki. Þessum árangri má þakka mörgum þáttum í starfsemi deildarinnar, sem lagt hefur gífurlegan metnað í að standa vel að starfinu. Mikill fjöldi efnilegra lekmanna eru í hinum ýmsu aldursflokkum deildarinnar og er staðan í elstu karlaflokkunum sérstaklega sterk…

  • Vegna handboltaskóla Hauka

    Skráning í handboltaskólann stendur enn yfir. Við viljum ítreka að hægt er að koma með ný börn og skrá þau alla vikuna. {Tengill_38}. Börnin eru beðin um að koma með gott nesti. Námskeið yngri barna hefst klukkan 9:00 og stendur til 12:00 og námskeið yngri barna hefst 13:00 og stendur til 16:00.

  • Handboltaskóli Hauka 2006

    8.-18. ágúst á Ásvöllum. Yngri hópur (börn fædd 1997 & síðar) kl. 09-12. Eldri hópur (börn fædd 1993-1996) kl. 13-16. Stelpur og strákar æfa saman Þátttökugjald: 1 vika kr. 3.000 2 vikur kr. 5.000 Veittur er 40% systkinaafsláttur Hægt er að skrá börnin hér

  • Evrópudráttur

    Í hádeginu í dag fór fram fyrsti drátturinn fyrir Evrópukeppnirnar næsta vetur. Stelpurnar okkar spila í Evrópukeppni bikarhafa eða Cup Winners´Cup og drógust þær á móti liði frá Ungverjalandi, Cornexi Alcoa-HSB Holding. Fyrri leikurinn verður heima 14/15 október og síðari leikurinn úti viku seinna eða 21/22 október. Strákarnir hefja leik í 2. umferð EHF keppninnar…

  • Yngri flokka þjálfarar óskast

    Yngri flokka þjálfarar í handknattleik óskast Handknattleiksdeild Hauka auglýsir störf þjálfara yngri flokka til umsóknar, fyrir veturinn 2006-2007. Umsækjendur sendi umsókn á unglingarad@haukar.is, fyrir 17. júní 2006. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Við þjálfun yngri flokka hjá Haukum er farið eftir kennsluskrá sem Haukar létu útbúa fyrir sig árið 2000 og hefur HSÍ…

  • Lokahóf handknattleiksdeildar

    Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka verður haldið að Ásvöllum, föstudaginn 19. maí n.k. Húsið opnar kl. 20:00 og hefst borðhald kl. 21:00. Takið með ykkur spil þar sem ræða formanns verður í lengra lagi. Verð aðeins kr. 1.000 Allir velkomnir Haukamenn fjölmennið og fagnið uppskeru vetrarins í góðra vina hópi

  • Magnús Sigmundsson

    Í kvöld gekk Magnús G. Sigmundsson markvörður til liðs við Hauka. Magnús lék áður með Haukum í sex ár samfleytt og kemur nú til baka og bjóða Haukar Magnús innilega velkominn á Ásvelli. Við hlökkum til að sjá strákinn milli stanganna næsta vetur.