Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Stelpurnar byrja í kvöld

    Í kvöld fer fram hinn árlegi leikur um meistara meistaranna í meistaraflokki kvenna. Í þessum leik mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs. Í fyrra urðu stelpurnar okkar, eins og við öll munum, bikarmeistarar eftir góðan sigur á Stjörnustúlkum í úrslitaleiknum. ÍBV sigraði svo barrátuna við Val um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn fer fram á heimavelli Íslandsmeistaranna og…

  • Forkeppni unglingaflokks kvenna

    Um helgina fer fram forkeppni unglingaflokks kvenna. Haukar senda í ár tvö lið til keppni og leika þau bæði um helgina. Haukar 1 leika í Digranesi. Fyrsti leikur þeirra er í kvöld, föstudag, klukkan 19:00 gegn ÍBV. Þær eiga svo leik aftur klukkan 20:00 á sama stað gegn Gróttu 2. Á morgun, laugardag, halda þær…

  • Forkeppni unglingaflokks karla

    Um helgina fer fram forkeppni unglingaflokks karla. Unglingaflokkur karla nefnist nú það sem áður hét 3.flokkur karla. Unglingaflokkur karla fer með tvo lið til keppni í vetur. Haukar 1 og Haukar 2. Haukar 1 spilar um helgina í Kaplakrika og á Strandgötu. Fyrsti leikur þeirra er í dag klukkan 17:30 gegn nágrönnum okkar úr FH….

  • Conversano

    Nú er ljóst að mótherjar strákanna í EHF keppninni verða ítalska liðið Pallamano Conversano. Fyrri leikurinn verður úti helgina 30.sept./1.okt. og seinni leikurinn heima 7/8 okt.

  • Göngum til góðs!!

    Laugardaginn 9.september stendur Rauði kross Íslands fyrir þjóðarátakinu Göngum til góðs. Þá verður gengið í hús og safnað peningum fyrir börn í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Við Haukafólk munum að sjálfsögðu taka þátt í átakinu og munum saman ganga til góðs. Haukafólk ætlar að hittast á Ásvöllum frá klukkan…

  • Æfingar hafnar samkvæmt æfingatöflu

    Nú eru æfingar komnar á fullt samkvæmt æfingatölfunni. Æfingatöfluna er hægt að finna undir Yngri flokkar hér til vinstri og velja viðkomandi flokk. Við hvetjum alla til að mæta á æfingu og prófa handbolta. Allir velkomnir. Þjálfarar í vetur eru: 8.flokkur (börn fædd 1999 & síðar) Albert Magnússon, gsm. 848-4236 Steinar Pétursson, gsm. 615-4005 7.flokkur…

  • Úrslitaleikir Reykjavík Open

    Bæði mfl.karla og mfl.kvenna spila til úrslita á Reykjavík Open. Úrslitaleikurinn hjá stelpunum er kl. 18:00 við Stjörnuna og kl. 20:00 hjá strákunum. Ekki er ljóst hverjir mótherjar þeirra verða þegar þetta er skrifað. Báðir leikirnir fara fram í Austurbergi og er aðgangur ókeypis. mfl.kvenna kl. 18:00 Haukar-Stjarnan mfl.karla kl. 20:00 Haukar – ?? Allir…

  • Reykjavík Open 2006

    Hið árlega handboltamót Reykjavík Open verður haldið dagana 23.-26. ágúst. Strákarnir spila í Austurbergi og stelpurnar í Seljaskóla. Vekjum athygli á að Haukar eru með tvö lið í karlaflokki. Hér má sjá leikjaniðurröðun.

  • Evrópudráttur

    Í gær var dráttur í Evrópukeppninni og mæta strákarnir okkar tapliðinu úr leikjum Constanta frá Rúmeníu og Pallamano Conversano frá Ítalíu. Þessi lið mætast í forkeppni meistaradeildarinnar 2. og 9 sept. Fyrri leikur strákanna verður úti helgina 30.sept./1.okt og seinni leikurinn heima viku síðar.