Göngum til góðs!!

Laugardaginn 9.september stendur Rauði kross Íslands fyrir þjóðarátakinu Göngum til góðs. Þá verður gengið í hús og safnað peningum fyrir börn í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Við Haukafólk munum að sjálfsögðu taka þátt í átakinu og munum saman ganga til góðs. Haukafólk ætlar að hittast á Ásvöllum frá klukkan 10 til klukkan 12 og ganga til góðs í hverfinum í kringum húsið.

Þjóðarátakið Göngum til góðs var síðast haldið árið 2004. Þá stóðum við Haukafólk okkur mjög vel og söfnuðum miklum fjármunum. Að sjálfsögðu ætlum við að vera jafn öflug í söfnuninni eins og áður og hvetjum við því Haukamenn og konur til að fjölmenna á Ásvelli á laugardaginn.

ÁFRAM HAUKAR!!