HAUKADAGUR Í HÖLLINNI

Laugardaginn 25. febrúar leika bæði karla- og kvennalið Hauka til úrslita í bikar. Stelpurnar gegn ÍBV og strákarnir gegn Stjörnunni. Þetta er í þriðja sinn sem Haukar fara með bæði liðin í Bikarúrslit sem er einsdæmi.

Klukkan 10 til 12 er upphitun á Ásvöllum, andlistmálun og glens og gaman, (saman). Klukkan tólf verða rútuferðir í Laugardalshöll og að karlaleik loknum verða rútuferðir til baka að Ásöllum.
Forsala aðgöngumiða á Ásvöllum frá 10:30 til 12:00.
Miðaverð 1.000 kr. fyrir 16 ára og eldri og 500 kr. fyrir 8 – 15 ára.
Frítt fyrir alla í rúturnar.

Nú mæta allir handknattleiksunnendur og styðja liðin okkar til sigurs. Við málum Höllina rauða í báðum leikjunum.

Haukar – ÍBV mfl. kvenna kl. 13:15
Haukar-Stjarnan mfl. karla kl. 15:45

ÁFRAM HAUKAR