BIKARMEISTARAR 2006

Já stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur í bikarúrslitum á móti ÍBV í Höllinni í dag og launin voru frábær: Bikarmeistarar 2006.

Leikurinn var jafn í byrjun en undir lok fyrri hálfleiks náðu stelpurnar okkar tökum á leiknum og í hálfleik var staðan 12-10 fyrir Hauka. Í síðari hálfleik leiddu Haukar leikinn en ÍBV náði að jafna í 20-20 en ekki að komst yfir sem betur fer. Stelpurnar okkur bættu í og juku forskotið og lönduðu frábærum sigri 29-25 og eru því BIKARMEISTARAR 2006. Stórglæsilegur árangur hjá stelpunum okkar.

Ekki gekk það eins vel hjá strákunum okkar, en þeir töpuðu fyrir Stjörnunni 20-24. Leikurinn hjá stákunum fór svipað af stað og hjá stelpunum, jafnræði með liðunum í upphafi og Haukar með forskotið í hálfleik 11-9. Þegar líða tók á síðari hálfleikinn hrundi spilið hjá okkar mönnum og Stjarnan náði yfirhöndinni og vann að lokum sigur.

Haukar þakka ÍBV og Stjörnunni fyrir leikina í Höllinni og við óskum Stjörnunni til hamingju með titilinn.