Bein Lýsing af norðan

Þeir sem komust ekki norður á leik Akureyrar og Hauka að þá er hægt að fylgjast með í beinni Textalýsingu. en tengill á Lýsinguna er hér fyrir neðan.. http://www.akureyri-hand.is/beinlysing/?t=1

Akureyri – Haukar í kvöld

Í kvöld mun Haukar heimsækja Akureyringa í Íþrótahöllinni á Akureyri en leikurinn er liður í N1-deild karla. Leikurinn hefst klukkan 18:00 en þetta er síðasti leikurinn í 19.umferðinni en hinir leikirnir voru leiknir í gær. Haukar eru sem fyrr í fyrsta sæti deildarinnar með 28 stig, einu stigi fleira en Valur sem sigraði nágranna okkar […]

Stórsigur Hauka á FH-ingum í kvöld

Það voru að sjálfsögðu Haukamenn sem fóru með öruggan sigur af hólmi í kvöld en liðið mætti grönnum sínum í FH. Eftir frábæran fyrri hálfleik, góða vörn og ótrúlegar markvörslur frá Birki Ívari Guðmundssyni var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Haukar eru því enn með þriggja stiga forystu í N1-deild karla […]

Hvað segir Freyr Brynjarsson ? Haukar – FH á morgun

Við fengum hornamanninn og varnartröllið Freyr Brynjarsson í stutt viðtal fyrir stórleik morgundagsins, leiknum sem enginn Hafnfirðingur né handboltaáhugamaður hér á landi ætti að láta framhjá sér fara, leik Hauka og FH í N1-deld karla sem fer fram á Ásvöllum á morgun klukkan 19:30. Freyr er hinn hressasti maður og er bjartsýnn fyrir morgundeginum, eins og […]

Stórleikurinn á morgun, Haukar – FH

Það verður allt sett á fullt á morgun þegar Haukar og FH eigast við í N1-deild karla á Ásvöllum. En Hafnarfjarðarslagurinn hefst klukkan 19:30. Þetta er fjórða viðureign þessara liða í vetur og eru Haukar með 10 mörk í plús eftir þessar viðureignir. Og stefnan er sett á að ná 20 mörk í plús.. það […]

Haukasigur í Safamýrinni

Sigur Hauka á Fram í gærkvöldi í N1-deild karla var afar mikilvægur. Með sigrinum hafa Haukar enn þriggja-stiga forskot á Val sem er í öðru sæti í úrvalsdeildinni í handknattleik. Haukar höfðu fimm marka sigur 22-27 í Safamýrinni. Markahæstur Hauka var Sigurbergur Sveinsson með 11 mörk og næstur honum voru þeir Freyr Brynjarsson og Einar […]

Haukamenn geta komist nær titlinum

Á morgun, fimmtudag, geta Haukamenn stigi skrefi nær deildarmeistaratitlinum þegar þeir heimsækja Fram í N1 deild karla. Leikurinn fer fram í Safamýri, heimavelli Fram, og hefst klukkan 19:30. Haukar eru fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar með 24 stig en Fram er í 3. sæti með 19 stig. Í öðru sæti eru hins vegar Valsmenn […]

Mikilvægur sigur hjá 2. flokki

2. flokkur karla í handbolta lék sinn 3. leik á sex dögum í gærkvöldi en það var Hafnarfjarðarslagur gegn FH sem beið strákana. Haukastrákarnir unnu mikilvægan sigur á Selfossi á Selfossi á föstudagskvöld 32–30 eftir að hafa verið fjórum mörkum undir þegar skammt lifði leiks. Sigur í leiknum í gær þýddi að annar mikilvægur sigur og tvö stig […]

Heiða Ingólfsdóttir í U-19

Heiða Ingólfsdóttir er í æfingahópi U-19 kvenna í handknattleik sem æfir á næstunni. Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari, valdi 20 leikmenn til æfinga en fyrsta æfing er á mánudag í Mýrinni í Garðabæ kl. 18:00. Allur hópurinn. 

Bryndís einn þriggja nýliða í A-landsliðshópnum

Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið 19  manna æfingahóp sem mun æfina vikuna 2.-8. mars. Haukar eiga tvo fulltrúa í hópnum en það eru þær Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Bryndís Jónsdóttir en Bryndís er einn þriggja nýliða sem Júlíus Jónasson valdi að þessu sinni. Hægt er að sjá allan hópinn hér. Mynd: Bryndís Jónsdóttir hefur […]