Verða Haukar tvöfaldir N1-deildarmeistarar um helgina

Það verða tveir stórleikir á Ásvöllum um helgina í N1-deildinni. Fyrri leikurinn er á morgun í N1-deild kvenna svo á sunnudaginn er leikur í N1-deild karla. Sigri Haukar í leikjunum verða þeir deildarmeistarar í ár.

Haukastelpurnar mæta FH á morgun og hefst leikurinn klukkan 16:00. 

Haukastrákarnir leika svo gegn HK á sunnudaginn og hefst sá leikur einnig klukkan 16:00.

Að sjálfsögðu hvetjum við allt Haukafólk til að fjölmenna á leikina um helgina og styðja við bakið á sínu liði. Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegur vetur hjá báðum Hauka liðunum og gengið verið nokkuð gott.

Það er því um að gera að fjölmenna á síðasta heimaleik liðana í deildinni í vetur.