Stelpurnar mæta Fram í öðrum leik

Á morgun, þriðjudag, mæta stelpurnar í meistaraflokki kvenna liði Fram í öðrum leik liðanna í undanúrslitum N1 deildarinnar. Leikurinn fer fram í Framhúsinu við Safamýri og hefst klukkan 19:30. Fram vann fyrri leik liðanna á Ásvöllum á laugardaginn og verða því Haukastelpur að sigra ætli þær sér ekki að fara í sumarfrí. Við hvetjum Haukamenn, […]

Haukastrákar tryggðu sér oddaleik

Í kvöld fór fram annar leikur Hauka og Fram í undanúrslitum N1 deildarinnar. Leikurinn fór fram í Framhúsinu en Fram hafði forystu í einvíginu, 1-0, eftir sigur á Ásvöllum á fimmtudaginn. Haukastrákar þurftu því á sigri að halda til að fara ekki í sumarfrí. Haukamenn byrjuðu leikinn mun betur, Fram komst yfir en leikurinn endaði […]

Haukar verða að vinna í kvöld – Í beinni á HSÍtv

Haukar mæta Fram í kvöld í öðrum leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar karla. Deildarmeistarar Hauka töpuðu fyrir Fram í síðasta leik sem þýðir að Framsigur í kvöld sendir Hauka í snemmbúið sumarfrí. Aron Kristjánsson segir í samtali við mbl.is að liðið sé upp við vegg og sigur sé nauðsynlegur en það lið sem fyrr vinnur tvo […]

4. flokkur íslandsmeistarar – myndir

4. flokkur karla varð í gær sunnudaginn 19. apríl íslandsmeistarar í 4. flokki karla eftir æsispennandi leik við Gróttu. Okkar menn sýndu frábæra einbeitingu og sigurvilja eftir að hafa elt Gróttu menn allan leikinn.  Staðan var jöfn eftir venjulegan leiktíma en í framlengingu tóku Haukamenn öll völd á vellinum og sigruðu 37 – 35 eftir […]

Annar Framsigur á Ásvöllum

Fram vann stórsigur á Haukum í gær í úrslitakeppni N1-deildar kvenna. Lokatölur leiksins 32-30. Haukar leiddu þegar um 10 mínútur voru til leiksloka 27-26 en Framarar höfðu betur á lokasprettinum. Þar með er staðan 1-0 fyrir Fram en næsti leikur liðanna er á þriðjudag í Safamýrinni. Örlög Hauka eru í Safamýrinni en karla- og kvennalið […]

4.flokkurinn leikur til úrslita á morgun

Á morgun, sunnudag 18.apríl mun 4.flokkur Hauka keppa við Gróttu í úrslitaleik Íslandsmót karla. Síðastliðinn þriðjudag kepptu Haukar við KA í 8-liða úrslitum og sigruðu þeir þann leik með fjórum mörkum, 34-30 í hörkuleik sem fram fór á Ásvöllum. Þeir mættu svo FH í undanúrslitunum og sýndu þeir þá hver er stóri bróðir í Hafnarfirðinum […]

4.flokkur karla í úrslitum um helgina

Um helgina fer fram úrslitakeppnin í 4.flokki karla og kvenna í handknattleik í keppni A-liða. Að sjálfsögðu eigum við lið í undanúrslitum en í dag, laugardag spilar 4.flokkur karla í undanúrslitum í Austurbergi. Leikurinn hefst klukkan 14:00 en strákarnir mæta þá liði FH. Hinn leikurinn í undanúrslitunum er síðan viðureign Gróttu og Fram. Úrslitaleikirnir fara […]

Myndasafn: Haukar töpuðu fyrsta leiknum

Haukar töpuðu í kvöld fyrir Fram í fyrsta leik liðanna um sæti í úrslitum N1-deildar karla 28-32. Haukar leiddu stóran hluta úr leiknum en Fram jafnaði þegar um fimmtán mínútur voru eftir af leiknum. Eftir það tóku gestirnir öll völd á vellinum og höfðu sigur. myndir: stefan@haukar.is

Bein útsending frá leikjum kvöldins

Í kvöld verður sjónvarpað beint frá leikjunum tveimur í undanúrslitum N1 deildar karla. Útsendingarnar fara fram á netinu og eru slóðirnar hér að neðan. Útsending hefst klukkan 19:15 en leikirnir hefjast klukkan 19:30. Til að fylgjast með leik Hauka og Fram. Til að fylgjast með leik Vals og HK. 

KKK í viðtali, Haukar – Fram á morgun

Eins og við höfum áður greint frá hér á síðunni fer fram fyrsti leikur Hauka og Fram í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn á morgun, fimmtudag. Leikurinn verður leikinn allur á Ásvöllum og hefst hann tímanlega klukkan 19:30. Fyrr í dag birtum við viðtal við Frey Brynjarsson sem var valinn í úrvalslið seinni umferðarinnar í N1-deild karla. […]