Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Fjórir Haukastrákar í U-19

    Fjórir Haukastrákar eru í U-19 sem tekur þátt á Opna Evrópumótinu sem fer fram í Gautaborg í Svíþjóð. Landsliðsþjálfararnir völdu fjóra Haukastráka í liðið en það eru þeir Heimir Óli Heimisson, Tjörvi Þorgeirsson og Stefán Sigurmannsson. Einnig valdi hann Guðmund Árna Ólafsson sem er nýgenginn til liðs við Hauka frá Selfossi. Fyrsti leikur liðsins er í dag…

  • Tveir leikmenn skrifuðu undir samning hjá Haukum

    Í síðustu viku skrifuðu tveir leikmenn undir nýjan samning við hkd. Hauka. Hkd. Um er að ræða Elías Már Halldórsson sem kom til liðsins á miðju keppnistímabilinu 2007/2008 og Jónatan Jónsson sem er uppalinn hjá Haukum en var lánaður til FH á síðasta tímabili (2008/2009). Þar áður höfðu tveir leikmenn gengið til liðs við Hauka,…

  • Fjölmargir Haukarar í íslenska landsliðinu

    Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik valdi 21-manns leikmannahóp sem mun taka þátt í næstu fjórum leikjum Íslands í undankeppni fyrir EM 2010. Þeir Andri Stefan, Kári Kristján Kristjánsson, Freyr Brynjarsson og Sigurbergur Sveinsson eru allir í hópnum en þeir urðu Íslands-og deildarmeistarar með Haukum í vetur. Það eru fleiri leikmenn í hópnum sem…

  • Íþróttaafrekssvið í Flensborg fyrir handboltaungmenni í Haukum

    Kynningarfundur fyrir nemendur sem eru að hefja nám í framhaldsskóla  haldinn 4. júní kl. 20:00 á Ásvöllum.     Samvinna Flensborgarskóla og handknattleiksdeild Hauka um íþróttaafrekssvið í handknattleik hófst haustönnina 2007.  Það hafa frá 14-18 nemendur verið í náminu og hefur vel til tekist.   Hér er um að ræða athyglisvert tækifæri fyrir iðkendur í…

  • Fréttatilkynning frá handknattleiksdeild Hauka

    Handknattleiksdeild Hauka hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að deildin hafi gert samning við Aron Kristjánsson um að Aron muni halda áfram að þjálfa Íslandsmeistaralið Haukar næstu tvö árin. Með því að smella á Lesa meira má sjá fréttatilkynninguna í heild sinni. Fréttatilkynning frá handknattleiksdeild Hauka Aron Kristjánsson áfram við stjórnvölinn hjá Íslandsmeisturum Hauka…

  • Lokahóf handknattleiksdeildar á föstudaginn

    Á föstudaginn næstkomandi, 15.maí fer fram lokahóf handknattleiksdeildar á Ásvöllum. En þá lýkur þessu handboltatímabili formlega hjá Haukum en þetta tímabil er búið að vera langt og strangt en að sama skapi mjög svo skemmtilegt. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á lokahófið á föstudaginn og skemmta sér í góðum vinahópi. Hægt er…

  • Sigurbergur og Hanna best

    Haukarfólk var mjög áberandi á lokahófi HSÍ sem fram fór á laugardagskvöld en mörg verðlaun kvöldsins komu í hlut okkar fólks. Sigurbergur Sveinsson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir voru valin bestu leikmenn tímabilsins. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var valinn þjálfari ársins í karlaflokki en Díana Guðjónsdóttir hjá Haukum í kvennaflokki. Valdimarsbikarinn hlaut Arnar Pétursson, Haukum. Í liði ársins…

  • Pistill: Freyr Brynjarsson

    Handboltatímabilið er lokið með glæsilegum endi, en Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn síðastliðinn þriðjudag.  Freyr Brynjarsson sem spilaði lykilhlutverk í vörn Hauka í allan vetur og spilaði líklega hvað mest allra leikmanna Hauka varð 32ja ára einmitt síðasta þriðjudag og var þetta því enn skemmtilegra fyrir hann, enda verður maður ekki Íslandsmeistari á hverjum degi á…

  • Fyrsti áratugurinn eign Hauka

    Haukar unnu sinn áttunda Íslandsmeistaratitil í fyrradag þegar þeir báru sigur á Val í fjórum leikjum í úrslitum N1-deildar karla. Þar með skjótast Haukar upp fyrir Víkinga á lista yfir flesta Íslandsmeistaratitla en fyrir tímabilið voru bæði félög með sjö sigurár að baki.   Þeir rauðu er nú fjórða sigursælasta handknattleikslið landsins en aðeins Valur,…