Haukar til Ungverjalands

Í morgun var dregið í 3. umferð EHF keppninnar í handbolta, en Haukar eru eina íslenska liðið sem á lið í keppninni eftir að Fram féll úr leik í 2. umferð. Haukar voru næstsíðasta liðið upp úr pottinum í morgun og drógust gegn liði PLER KC frá Ungverjalandi.  Lið PLER KC kemur inn í keppnina […]

Dregið í Evrópukeppninni á morgun

Klukkan 9:00 í fyrramálið verður dregið í 3. umferð EHF keppninnar í handbolta. Við Haukamenn eigum eitt af þeim 32 liðum sem verða í pottinum á morgun, eftir að strákanir okkar unnu glæsilegan sigur á liði Wiska Plock um helgina. Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum EHF í Vín og hefst klukkan 11.00 að staðartíma eða […]

Kynningarvika í 7. flokki kvenna í handbolta

Vikuna 19.-23. okt. 2009 verður sérstök kynningarvika í handbolta fyrir 7. flokk kvenna. Flokkurinn er fyrir allar stelpur á aldrinum 8-9 ára eða þær sem eru í 3.-4. bekk. Leikmenn meistaraflokks kvenna munu kíkja við á æfingum og kenna stelpunum helstu töfrabrögð handboltans. Eftir síðustu æfingu vikunnar verður pizzupartý fyrir stelpurnar. Æfingar eru á eftirfarandi […]

Öruggur sigur á Wisla Plock í dag

Haukar gerðu sér lítið fyrir og rótburstuðu lið Wisla Plock að Ásvöllum í dag 29-21 og komast því samtals áfram í næstu umferð 57-51. Frábær vörn, góð markvarsla og markviss og góður sóknarleikur skóp þennan sigur hjá strákunum í dag.  Sigurbergur Sveinsson var markahæstur í leiknum í dag með 8 mörk. Björgvin Hólmgeirsson gerði 7 […]

Haukar – Wisla Plock á morgun

Á morgun, klukkan 16:00 verður leikur Hauka og Wisla Plock frá Póllandi flautaður á, á Ásvöllum. Um er að ræða seinni leikinn í viðureigninni en fyrri leikurinn fór fram í Póllandi síðasta laugardag þar sem Wisla Plock sigruðu leikinn með tveimur mörkum, 30-28. Forsala á leikinn er hafin á Ásvöllum – en frítt er inn […]

Myndir frá fyrri leik Hauka og Wisla Plock í Póllandi

Fyrri leikur Hauka og Wisla Plock frá Póllandi í Evrópukeppni félagsliða fór fram í Póllandi síðasta laugardag. Liðin mætast svo aftur á laugardaginn þá á heimavelli Hauka, Ásvöllum. Fyrri leikurinn endaði með tveggja marka sigri Pólverjana og eru Haukar í góðum séns á að komast áfram í kepninni. Leikurinn á laugardaginn hefst klukkan 16:00.   […]

Jafntefli á heimavelli gegn Akureyri

Í kvöld gerðu Haukar og Akureyri jafntefli á Ásvöllum í 2.umferð N1-deildar karla en flautað var til leiks klukkan 18:30. Leikurinn endaði 24-24 eftir að staðan hafi verið 13-12 Haukum í vil í hálfleik. Markahæstur í liði Hauka var Sigurbergur Sveinsson með sjö mörk og þó nokkur úr vítum. Næsti leikur Hauka er á laugardaginn […]

Sex Haukstelpur valdar í úrtakshópa HSÍ

Í gær voru þrír úrtakshópar HSÍ valdir, allt kvennalið. Haukar eiga leikmenn í tveimur þeirra en um er að ræða U-17 ára og U-19 ára landsliðsúrtak. En Haukar eiga engan leikmann í U-15 ára liðinu. Í U-17 eru fjórar Haukastelpur í hópnum, þær Karen Helga Sigurjónsdóttir, Gunnhildur Pétursdóttir, Guðrún Ósk Guðjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir. Guðríður […]

Haukar – Akureyri á morgun, miðvikudag

Það verður stórleikur á Ásvöllum á morgun þegar Haukar spila sinn fyrsta heimaleik í N1-deild karla í vetur og mæta Akureyri. Leikurinn hefst klukkan 18:30. Og hvetjum við fólk til að mæta tímanlega á völlinn.   Á meðan Haukar sigruðu Stjörnunnar naumlega 17-16 í fyrstu umferð þá tapaði Akureyri gegn Val að Hlíðarenda 23-19 eftir […]