Dregið í Eimskipsbikarnum í gær

Það verður sannkallaður stórkalla slagur í 16-liða úrslitum bikarsins en dregið var í hálfleik í leik Íslands og Pressuliðsins. Tvö Haukalið voru í pottinum og drógust þau saman. Haukar fá því útileik gegn hinu gríða sterka liði í Haukum 2.

Í því liði verða gamlar kempur ásamt nokkrum velvöldum úrvals Haukamönnum. Án þess að nokkur viti nánar um liðskipan þá hefur heimasíðan eftir öruggum heimildum að Wipe out stjarna okkar Haukamanna Júlíus Sigurjónsson a.k.a. Júlli 15, a.k.a. Júlli Diskó verði ein af aðalmönnunum í þessu feikna sterka liði. Einnig má búast við leikmönnum eins og Páli Ólafssyni, Baumruk og Sigurjóni a.k.a Didda stórskyttu.

Þetta er leikur sem engin alvöru Haukamaður eða kona mun láta fram hjá sér fara. Leikurinn verður eins og fyrr segir á Ásvöllum 16.nóvember. 

Tekið af bloggsíðu meistaraflokks Hauka.