Góður árangur á Íslandsmóti Drengja og telpna

3 krakkar sem hafa stundað æfingar hjá haukum fóru norður á Akureyri um síðustu helgi og tóku þátt í Íslandsdsmóti drengja og telpna sem er fyrir 15 ára og yngri.

Öll enduðu þau með 4 vinninga af 9 mögulegum og urðu ofarlega á sínum aldursflokki.

Magni Marelsson varð 2. í árgangi 1998 og vann sér inn sín fyrstu atstig.  Baldur Teodor Petersson varð efstur í flokki 2001 og Sóley Lind Pálsdóttir varð í 1-2 sæti stúlkna og mun þurfa í einvígi um íslandsmeistaratitilinn..