-
-
Hafnarfjarðarmót Actavis og Hauka
Um helgina fer fram Hafnarfjarðarmót Actavis og Hauka fyrir 5. flokki kvenna í handbolta. Mótið fer fram á Ásvöllum og í Strandgötu. Mótið hefst klukkan 15.40 á föstudag og líkur klukkan 19.00 á laugardag. Áætlað er að í kringum 200 stúlkur muni taka þátt í mótinu en samtals eru skráð til leiks 25 lið…
-
Haukaslagur í bikarnum
Meistaraflokkur karla í handknattleik fær ekki langa hvíld eftir leiki helgarinnar í Evrópukeppninni. Í kvöld, þriðjudag, á liðið erfiðan „útileik“ fyrir höndum í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins þegar það sækir gömlu brýnin í Haukum 2 heim að Ásvöllum. Leikurinn hefst kl. 19:30 og er frítt inn fyrir stuðningsmenn Hauka 2. Samkvæmt öruggum heimildum innan úr herbúðum Hauka 2 er búið að…
-
Glæsilegur sigur Hauka í Evrópukeppninni
Lokamínútur seinni leiks Hauka og Pler KC voru æsispennandi. Ljóst var að Haukum dyggði ekki jafntefli og því kom ekkert annað til greina en sigur. Haukar átti síðustu sókn leiksins og voru einum fleiri því Birkir Ívar skipti við Heimir Óla sem kom inn í sóknina og markið látið standa autt. Sú áhætta bar árangur…
-
Haukar áfram í Evrópukeppninni – Einar Örn enn með flautumark
Einar Örn Jónsson var hetja Haukamanna í dag þegar hann skoraði sigurmark Hauka á síðustu sekúndum leiksins. Haukar eru því komnir áfram í 16 liða úrslit keppninnar eftir magnþrunginn og spennandi leik þar sem áhorfendur voru vel með á nótunum. Myndir og frekari fréttir innan skamms.
-
Tóti og Heimir koma inn í hópinn fyrir seinni leikinn
Þórður Guðmundsson og Heimir Óli Heimisson koma inn í lið Hauka sem mætir Pler KC í hreinum úrslitaleik um hverjir fara áfram í 16 liða úrslit Evrópukeppni félagsliða kl. 18 í dag. Heimir Óli kemur inn í stað Jónatans Jónssonar þannig að þar kemur einn línumaður í stað annars. Tóti, hávaxin ung skytta, kemur inn í stað…
-
Evrópukeppnin eflir íslenskan handknattleik
Undanfarna daga, vikur og mánuði hefur fjöldi fólks lagt á sig mikla vinnu, veitt styrki og hvatningu til að hópur manna geti látið draum sinn rætast um að etja kappi við sterk evrópsk lið á handboltavellinum. Þátttaka í Evrópukeppni í handbolta er fjarri því að vera sú tekjulind sem þekkist úr knattspyrnuheiminum. Því eru þeir…
-
Myndir frá leik Hauka og Pler KC í dag
Haukar og ungverska liðið Pler KC skildu jöfn í fyrri leik liðanna í 3. umferð Evrópukeppni félagsliða sem var að ljúka að Ásvöllum. Spennan magnast því fyrir seinni leikinn á morgun kl. 18 . Einar Örn Jónsson skoraði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndu leiksins og lokaúrslit 26-26. Haukar höfðu á brattan að sækja allan leikinn og voru undir…
-
Jafnt í fyrri leik Hauka og Pler KC – myndir og frekari fréttir innan skamms
Haukar og Pler KC skildu jöfn í fyrri leik liðanna sem var að ljúka að Ásvöllum 26-26 en Einar Örn Jónsson jafnaði fyrir heimamenn á síðustu sekúndu leiksins. Frekari fréttir og myndir frá leiknum verða settar inn innan skamms.
-
Stefnir í hörkuleik
Þegar þessar línur eru ritaðar er rúm klukkustund í Evrópuleik Hauka og Pler KC , leikmenn liðanna eru komnir í hús og ljóst hvernig liðin verða skipuð. Ungverjanir mæta með 13 leikmenn. Sterkasti leikmaður liðsins er Peter Lendvay, leikmaður nr. 11, sem leikur bæði á miðju og sem vinstri skytta. Hann var markahæstur í leik liðsins gegn Pick Szeged í vikunni með 8…
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
