Haukamenn í landsliðum

Um næstu helgi verður æfingahelgi hjá yngri landsliðum HSÍ. Þá munu U-20, U-18 og U-16 ára landslið karla æfa í Kórnum. Við Haukamenn eigum sem fyrr nokkra aðila í þessum landsliðum.

Í U-20 ára landsliðinu eigum við Haukamenn 4 leikmenn en það eru þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Heimir Óli Heimisson, Stefán Rafn Sigurmannsson og Tjörvi Þorgeirsson. Þess má geta að þetta eru allt strákar sem eru að banka á dyrnar hjá meistaraflokki þessa dagana.

Aðeins einn Haukamaður er í U-18 ára landsliðinu sem hefur verið valið en það er Arnar Daði Arnarsson.

Í U-16 ára landsliðinu eigum við Haukamenn þrjá leikmenn en þeir eru Adam Haukur Baumruk, Daníel Þ. Ingason og Sigurður Njálsson.

Við óskum Haukastrákunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis um helgina.