Lára Rut valin í u-17

HaukarUm helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 og U-19 ára kvennalandsliðum Íslands. Ólafur Þór Guðbjörnsson og Þorlákur Árnason þjálfarar liðanna hafa valið hópinn.

Í U-17 eiga Haukar einn fulltrúa en það er Lára Rut Sigurðardóttir.

Æfingarnar fara fram í Kórnum og Reykjaneshöllinni um helgina. Um er að ræða 26 manna hóp sem valinn hefur verið.

Við óskum Láru Rut til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis á æfingunum og í framtíðinni.