Lokahóf knattspyrnudeildar Hauka
Það var frábær stemning og góð mæting á lokahófi knattspyrnudeildar Hauka sem var haldið í gærkvöldi í Samkomusal Knattspyrnufélagsins Hauka á Ásvöllum. Meistaraflokkur kvenna var að sjálfsögðu í sviðsljósinu sem kórónaði frábært sumar með 3-0 sigri á Völsungi fyrr um daginn þar sem liðið tók svo á móti deildarmeistaratitilinum við mikil fagnaðarlæti. Boðið var upp…
