Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Samkomulag Hauka og Báru Fanneyjar.

    Knattspyrnufélag Haukar hefur gert samkomulag við Báru Fanneyju Hálfdanardóttur, sálfræðing, um að veita iðkendum félagsins aðgang að sálfræðiviðtölum í fundaraðstöðu félagsins á Ásvöllum. Markmið þessa samstarfs er að styðja við andlega heilsu íþróttafólks með því að bjóða upp á þjónustu sálfræðings með sérþekkingu á íþróttasálfræði í þeirra nærumhverfi. Bára Fanney útskrifaðist með meistaragráðu í klínískri…

  • Sumaríþróttaskólinn

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2025 Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2024 fyrir börn fædd 2013-2018, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum og hafa allir kennarar skólans mikla reynslu…

  • Getraunahópur Hauka

    Þeir voru glaðbeittir félagarnir sem hittust í morgun í Guðsveinsstofu til að spá í spilin í getraunum dagsins. Góð stund með góðum félögum og líflegar umræður með kaffi og kruðirí á kantinum. Að loknum spádómum um gengi liða í enska boltanum var rölt út í nýju knatthöllina sem senn verður tekin í notkun. Loksins, loksins, eru…

  • Andlátsfrétt

    Þau sorglegu tíðindi bárust á gamlársdag að góður starfsmaður Hauka til áratuga, Bjarni Hafsteinn Geirsson, hafi látist eftir skammvinn veikindi. Haddi Geirs, eins og hann var ævinlega kallaður, markaði djúp spor í sögu okkar Haukanna. Bjarni Hafsteinn var á unga aldri góður handknattleiksmaður, hann sat um tíma í stjórn Knattspyrnufélagsins Hauka og gengdi þar lengi…

  • Viðurkenningarhátíð Hauka á gamlársdag 2024

    Um áramót héldu Haukar sína árlegu viðurkenningarhátíð þar sem við veitum okkar góða íþróttafólki viðurkenningar og tilnefndum einstaklinga í kjöri um íþróttakonu Hauka, íþróttakarls Hauka og þjálfara Hauka árið 2024. Viðurkenningarhátíðin var vel sótt og margir fögnuðu góðum árangri á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikskona, var kjörin íþróttakona Hauka, Gunnlaugur Sigurðsson, karate, var kjörinn…

  • Elín Klara kjörin íþróttakona Hafnarfjarðar 2024

    Á viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðabæjar sem haldin var þann 27. desember sl. voru afhentar viðurkenningar til íþróttafólks sem þótti standi sig einstaklega vel á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, var valin íþróttakona Hafnarfjarðar í annað sinn og íþróttakarl Hafnarfjarðar var valinn Daníel Ingi Egilsson.  Elín Klara hefur sýnt að hún er ein besta handknattleikskona landsins. Þá voru þau…