Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Býr dómari í þér?

    Dómgæsla er tilvalin leið fyrir allt fótboltaáhugafólk að vera hluti af þessum frábæra leik og samtímis starfa fyrir félagið sitt. Þann 12. október hefst Unglingadómaranámskeið hjá KSÍ. Hafir þú áhuga á því að mennta þig sem dómara, og í framhaldinu dæma leiki fyrir Hauka, þá býðst félagið til að kosta öll námskeiðsgjöld. Þetta fyrsta námskeið…

  • Glæsilegt lokahóf búið

    Haukar héldu lokahóf sitt í gær í Skútunni í Hafnarfirði. Veitt voru mörg góð verðlaun handa þeim leikmönnum sem þóttu skara fram úr í sumar. Einnig var veglegt happdrætti með mörgum flottum vinningum. Fjórir leikmenn meistaraflokkanna fengu verðlaun fyrir að spila alla leikina það voru þær Björk Gunnarsdóttir og Saga K. Finnbogadóttir sem og Goran…

  • Sara Björk heldur áfram að skora

    Eins og við greindum frá á síðunni fyrr í vikunni er Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður meistaraflokks Hauka að spila með Undir 19 ára landsliði Íslands í undankeppni fyrir EM. En þar eru íslensku stelpurnar í riðli með Portúgölum, Grikkjum og Rúmenum. Á fimmtudaginn sigruðu stelpurnar Rúmenía en þar skoraði Sara Björk eitt mark. Í dag…

  • Meistarar meistaranna….

    Á morgun laugardaginn 29. september er leikur milli núverandi meistara í 2. deild 2007(Haukar) og þeirra meistara (dverga) sem unnu 3. og 2. deildina árin 2000 og 2001. Leikurinn hefst kl: 16:00 og verður spilað á grasvellinum á Ásvöllum. Menn, dvergar og tröll fjölmennið og hvetjið ykkar lið. Um kvöldið ætla menn svo að fjölmenna…

  • Allir flokkar á fullt – smá breytingar á töflunni

    Mánudaginn 1. október fara allir flokkar á fullt. Æfingataflan sem var gefin út 3. september hefur breyst. Ég mæli með að þið kynnið ykkur rækilega núverandi æfingatíma viðkomandi flokks. Það má gera á þrennan hátt: 1. Smella á krækjuna hér til hægri á forsíðunni þar sem stendur „Æfingatafla og iðkendaupplýsingar“. Þar eru æfingatímar allra flokka…

  • Sara Björk skoraði fyrir u-19

    Undir 19 ára landslið kvenna er þessa dagana að spila í riðlakeppni fyrir EM árið 2008. Með Íslandi í riðli eru Rúmenía, Portúgal og Grikkland. Í dag léku íslensku stelpurnar sinn fyrsta leik í riðlinum gegn Rúmeníu, íslenskustelpurnar sigruðu leikinn 4-0. Sara Björk leikmaður Hauka skoraði annað mark Íslands rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Hin…

  • Starfskraftar óskast fyrir Uppskeruhátíðarballið

    Knattspyrnudeildin óskar eftir öllu Haukafólki sem vettlingi getur valdið til þess að koma á laugardaginn milli 12-14 og hjálpa til við uppsetninguna á salnum fyrir Stórdansleikinn sem verður haldinn um kvöldið. Ef þú vilt sýna (Hauka)lit, og taka þátt í þessu verkefni ásamt öðru alvöru Haukafólki, þá verður þú í rifnum gallabuxum og með ermar…

  • Andri Marteinsson framlengir

    Nú er orðið ljóst að Andri Marteinsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við félagið, en samningurinn gildir til árins 2010. Andri tók við meistaraflokki félagsins fyrir síðasta tímabils af Gústafi Adolfi Björnssyni. Áður en Andri tók við meistaraflokki Hauka var hann búinn að þjálfa yngri flokka félagsins í nokkur ár og einnig var hann…

  • Nýr þjálfari meistaraflokks kvenna

    Í fyrradag skrifaði hinn gamal reyndi leikmaður og þjálfari Guðmundur Magnússon undir 3ja ára saming við Hauka um þjálfun meistaraflokks-,2. & 3.flokks kvenna. Honum til aðstoðar verður hinn síkáti Ómar Freyr Rafnsson. Guðmundur er okkar Haukamönnum vel þekktur enda hefur hann spilað yfir 60 meistaraflokksleiki fyrir Hauka. Síðustu ár hefur Guðmundur verið fyrir austan að…