Sara Björk heldur áfram að skora

Eins og við greindum frá á síðunni fyrr í vikunni er Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður meistaraflokks Hauka að spila með Undir 19 ára landsliði Íslands í undankeppni fyrir EM.

En þar eru íslensku stelpurnar í riðli með Portúgölum, Grikkjum og Rúmenum.

Á fimmtudaginn sigruðu stelpurnar Rúmenía en þar skoraði Sara Björk eitt mark.

Í dag léku íslensku stelpurnar síðan gegn Grikkjum og fóru með 4-1 sigur að hólmi.

Sara Björk skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið, annað og þriðja mark leiksins.

Einnig skoruðu þær Rúna Stefánsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir.

Þær eiga einn leik eftir í riðlakeppninni er þær etja kappi við Portúgal.