Starfskraftar óskast fyrir Uppskeruhátíðarballið
Knattspyrnudeildin óskar eftir öllu Haukafólki sem vettlingi getur valdið til þess að koma á laugardaginn milli 12-14 og hjálpa til við uppsetninguna á salnum fyrir Stórdansleikinn sem verður haldinn um kvöldið.
Ef þú vilt sýna (Hauka)lit, og taka þátt í þessu verkefni ásamt öðru alvöru Haukafólki, þá verður þú í rifnum gallabuxum og með ermar brettar upp á laugardaginn milli kl. 12-14 í íþróttasalnum á Ásvöllum.
Í leiðinni má vekja athygli á því að kl. 15 sama dag leikur núverandi Meistaraflokkur karla vináttuleik við Meistaraflokk karla frá árinu 2001, sem vann einmitt 2. deildina það árið undir stjórn Willum Þórs.
