Íslenska A-landsliðið æfir á Ásvöllum
Í dag, þriðjudaginn 9.október, mun karla A-landslið Íslands kíkja í heimsókn á Ásvelli. Liðið mun hita upp fyrir leikinn gegn Lettlandi á miðvikudaginn og æfa á grasvellinu á Ásvöllum kl. 17:00-18:00. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir Haukaiðkendur að berja stjörnurnar augum og sjá hvað þarf að geta til að komast í fremstu röð.
