Allir flokkar á fullt – smá breytingar á töflunni
Mánudaginn 1. október fara allir flokkar á fullt. Æfingataflan sem var gefin út 3. september hefur breyst. Ég mæli með að þið kynnið ykkur rækilega núverandi æfingatíma viðkomandi flokks. Það má gera á þrennan hátt:
1. Smella á krækjuna hér til hægri á forsíðunni þar sem stendur „Æfingatafla og iðkendaupplýsingar“. Þar eru æfingatímar allra flokka á excel-formi.
2. Finna viðkomandi flokk undir „Yngri flokkar“ hér efst á síðunni, og sjá æfingatíma undir „æfingaráætlun“ í valmyndinni sem kemur upp til hægri hjá hverjum flokk.
3. Kíkja inn á bloggsíðu viðkomandi flokks; sjá „Bloggsíður flokkanna“ hér efst á forsíðunni
