Guðmundur Bragi lánaður til Aftureldingar

Haukar hafa lánað tímabundið hinn efnilega Guðmund Braga Ástþórsson til Aftureldingar. Guðmundur Bragi hefur verið að fá fleiri og fleiri tækifæri hjá meistaraflokki Hauka ásamt því að vera lykilmaður í U-liði félagsins og á síðasta tímabili var hann valinn efnilegasti leikmaður Grill 66 deildarinnar. Einnig varð hann Íslandsmeistari með 3. flokki félagins þar sem hann […]

Hafnarfjarðarmótið framundan

Eftir gott æfingamót í síðustu viku tekur meistaraflokkur karla þátt í öðru æfingamóti í þessari viku þegar Hafnarfjaðarmótið 2021 fer fram. Mótið er að þessu sinni haldið í Kaplakrika og eru leikirnir eins og hér segir: Þriðjudagurinn 24. ágúst 18:00 Haukar-Stjarnan Fimmtudagurinn 26. ágúst 20:00 Haukar-Afturelding Laugardagurinn 28. ágúst 13:00 FH-Haukar Frítt er inn og […]

Haukar komnir í úrslit Ragnarsmótsins

Meistaraflokkur karla í handbolta unnu í kvöld flottan sigur á ÍBV í öðrum leik sínum í Ragnarsmóti karla. Með sigrinum tryggðu þeir sér sæti í úrslitaleik mótsins á móti Fram. Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, kl. 16:00. Eins og fyrr segir eru allir leikir mótsins á Selfossi og er frítt inn en leikirnir eru […]

Frístundaheimilið Haukasel 2021-2022

Við viljum endilega hvetja foreldra sem eiga börn í 1-4. bekk í Hraunvallaskóla að kynna sér nánar um starfsemi Haukasels og velta þeim möguleika fyrir sér að skrá börnin ykkar hjá okkur. Þjónustan er tilvalin fyrir þá sem eru með iðkendur hjá félaginu, allir eru þó velkomnir. Hægt er að lesa nánar um starfsemina með […]

Haukagolfmótið 2021

Nú er komið að því Haukagolfarar nær og fjær. Haukamótið í golfi verður haldið á golfvellinum á Hvaleyri 17. september nk. Opnað verður fyrir skráningu þátttakenda viku fyrir mótið eða þann 10. september. Sú breyting verður núna að greiða verður þáttökugjald kr. 5.500 um leið og skráning fer fram. Eins og frá öndverðu verður keppt […]

Ragnarsmótið fer af stað

Það er komið að fyrstu leikjunum hjá meistaraflokki karla í handbolta þetta undirbúningstímabilið. En í gær hófst Ragnarsmót karla á Selfossi og leika Haukar sinn fyrsta leik í kvöld þegar þeir mæta Stjörnunni kl. 18:30. Stjarnan hóf leik í mótinu í gær þegar þeir töpuðu fyrir ÍBV en Haukar hefja sem fyrr segir leik í […]

Haukastrákar á EM í Króatíu

U19 ára landslið Íslands í karlaflokki leikur um þessar mundir í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Króatíu. Þar á meðal eru 2 Haukastrákar en það eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson og Kristófer Máni Jónasson. Báðir eru þeir hluti af meistarflokki Hauka ásamt því að vera lykilmenn í U liði Hauka á síðasta tímabili. Einnig […]

Haukastelpur á EM í Litháen

Þrátt fyrir að undibúningur fyrir næsta tímabil sé rétt ný hafinn er stelpurnar í U-17 ára landsliði Íslands í handbolta á fullri ferð í Litháen þar sem B-deild Evrópumóts U-17 ára liða fer fram. Þar eru 3 flottar Haukastelpur en það eru þær Elin Klara Þorkelsdóttir, Thelma Melsteð og Rakel Oddný Guðmundsdóttir. Þrátt fyrir ungan […]