Mikið um að vera í handboltanum

Deildarkeppnir meistaraflokka í handbolta eru við það að klárast og er því mikið um að vera fyrir Haukaliðin 3 um helgina en öll eru þau í efri hluta deilda sinna. U-liðið á leik á morgun, föstudag, kl. 18:00 en þá halda þeir í Laugardalshöll og etja kappi við Þrótt en fyrir leikinn eru liðin í […]

Selfoss – Haukar í kvöld

Strákarnir í meistaraflokki í handbolta fara yfir Hellisheiðina í kvöld og etja kappi við Selfoss í toppslag Olísdeildarinnar of er leikurinn leikinn í Hleðsluhöllinni kl. 19:30. Fyrir leikinn eru liðin í 1. og 2. sæti deildarinnar og munar 1 stigi á liðinum en Haukar eru á toppi deildarinnar með 29 stig þegar að 4 umferðir […]

Haukar – Stjarnan í Dominos deild kvenna í kvöld kl. 19:15

Næst síðasti heimaleikur stelpnanna í Dominos deild kvenna er í kvöld, þriðjudaginn 19. mars og hefst leikurinn kl. 19:15. Haukastelpur hafa að litlu að keppa og sitja sem fastast í 6 sæti deildarinnar og því lítið annað að keppa að en heiðurinn og að bæta sinn leik fyrir næsta tímabil. Liðið hefur spilað ágætlega í […]

Toppslagurinn færist á sunnudag

Breyting hefur orðið á leiktíma á næsta leik meistaraflokks karla í Olís deildinni en Haukastrákarnir halda þá austur á Selfoss. Leikurinn átti upphaflega að fara fram næstkomandi mánudag þann 25. mars en verður leikinn sunnudaginn 24. mars kl. 19:30 í Hleðsluhöllinni. Um er að ræða toppslag í Olísdeild karla þar sem að toppsætið er í […]

Vignir Svavarsson kemur heim í Hauka í sumar

Línumaðurinn og varnarsérfræðingurinn Vignir Svavarsson mun leika með Haukum á næsta tímabili. Vignir lék síðast í Haukatreyju veturinn 2004-2005 og kvaddi Ásvelli með Íslandsmeistarartitli vorið 2005 áður en hann hélt út í atvinnumennskuna. Hann hóf atvinnumannaferil sinn hjá Skjern í Danmörku þar sem hann lék við góðan orðstýr í þrjú tímabil áður en að leiðin […]

Tvíhöfði í Schenkerhöllinni á laugardaginn

Það verður mikið um að vera í Schenkerhöllinni laugardaginn 16. mars. Þá bjóða Haukar upp á tvíhöfða á Ásvöllum þegar að leikið verður í Olísdeild kvenna og Olísdeild karla. Stelpurnar eiga fyrri leikinn en þær mæta Val kl. 16:00 en um toppslag er að ræða. Strákarnir mæta svo ÍR í hörkuleik kl. 18:00 en strákarnir […]

Hafnarfjarðarslagur í Grill 66 deild karla

Það verður sannkallaður stórleikur í Grill 66 deild karla í kvöld þegar að ungu strákarnir okkur halda í Kaplakrika og etja þar kappi við FH U í Hafnarfjarðarslag. Leikurinn hefst kl. 20:00 en ungu strákarnir eru í hörku toppbaráttu í deildinni og eru þeir í 2. sæti fyrir umferðina með 19 stig úr 14 leikjum. […]