Selfoss – Haukar í kvöld

Strákarnir í meistaraflokki í handbolta fara yfir Hellisheiðina í kvöld og etja kappi við Selfoss í toppslag Olísdeildarinnar of er leikurinn leikinn í Hleðsluhöllinni kl. 19:30. Fyrir leikinn eru liðin í 1. og 2. sæti deildarinnar og munar 1 stigi á liðinum en Haukar eru á toppi deildarinnar með 29 stig þegar að 4 umferðir eru eftir. Það er því til mikils að vinna fyrir sigurvegarann í kvöld  og þurfa Haukastrákarnir allan þann stuðning sem þeir geta fengið. Fjölmennum í rauðu á Selfoss og áfram Haukar!