Tap gegn Fjölni í æfingaleik

Fjölnir vann Hauka með tveimur mörkum gegn einu í æfingaleik sem fór fram í Egilshöll í kvöld. Var þetta annar æfingaleikur Hauka á undirbúningstímabilinu en sá fyrsti var gegn Víking Reykjavík. Arnar Gunnlaugsson skoraði í þeim leik og gerði slíkt hið sama í kvöld þegar hann jafnaði metin i 1-1.   Bjarni Gunnarsson kom Fjölnismönnum […]

Haukastelpur töpuðu fyrir KR

Haukastelpur töpuðu fyrir fyrnasterku KR-liði í kvöld 62-81. KR-ingar voru yfir eiginlega frá fyrstu mínútu og unnu góðan sigur á Ásvöllum. Munurinn fór mest í 32 stig en ungu stelpurnar í Haukum stóðu sig vel í lokaleikhlutanum og minnkuðu muninn niður fyrir 20 stig en KR vann að lokum með 19 stigum. Stigahæst hjá Haukum […]

Seiglan skilaði jafntefli

Freyr Brynjarsson tryggði Haukum mikilvægt jafntefli gegn Valsmönnum að Hlíðarenda með marki fimm sekúndum fyrir leikslok. Niðurstaðan 20-20 og eru þessi KFUM lið því í tveimur efstu sætum deildarinnar, Valur með eins stigs forskot en Haukar eiga leik til góða. Hefði leikurinn tapast hefðu Valsmenn náð þriggja stiga forystu sem Haukar hefðu einungis átt kost á að […]

Myndir frá fjölliðamóti 7. fl. kk.

Nú stendur yfir fjölliðamót á Ásvöllum í 7. flokki drengja. Haukar eru í A-riðli og því ljóst að mótið er afar sterkt. Magnús Óskarsson sendi heimasíðuna þessar myndir en þetta er úr leik Hauka og Grindavíkur sem endaði með sigri Hauka. Myndir: Magnús Óskarsson    

Tækifæri til að komast á toppinn

Fyrsta sæti N1 deildar karla er í húfi þegar Haukar halda að Hlíðarenda og mæta Valsmönnum. Leikurinn hefst kl. 16:00 í dag (sunnudag). Fyrir leikinn eru Valsmenn í efsta sæti með 10 stig eftir sex leiki en Haukar í öðru sæti með 9 stig eftir fimm leiki.  Með sigri geta Haukar komist í vænlega stöðu og tyllt […]

Myndir úr leik Hauka og Fylkis

Haukastelpurnar eru komnar á flug og hafa unnið síðustu þrjá leiki. Pétur Haraldsson hefur verið duglegur að smella myndum af Haukaleikjum og með því að velja „Lesa meira“ hér að neðan má sjá fullt af myndum úr leik Hauka og Fylkis fyrr í dag.                       […]

Sannfærandi sigur: Hanna með 18 mörk og Bryndís með 25 skot varin

Haukar unnu sannfærandi sigur á Fylkisstúlkum 30-22 en leiknum var að ljúka að Ásvöllum. Hanna Guðrún Stefánsdóttir fór hamförum í leiknum og skoraði 18 (9) mörk en hún lék allan leikinn fyrir utan. Bryndís Jónsdóttir átti stórleik í markinu og varði 25 skot. Haukastúlkur unnu því þriðja leikinn í röð og skipa sér í sveit […]

Viltu ná þér í miða á stórleikinn á morgun?

Á morgun eiga strákarnir erfiðan útileik fyrir höndum þegar þeir mæta Val að Hlíðarenda. Sigurvegari leiksins skipar sér í efsta sæti N1 deildarinnar. Hægt er að fá gefins miða á leikinn á N1 bensínstöðinni við Hringbraut á milli kl. 14 og 15 í dag (laugardag). Því er um að gera að skella sér í bíltúr og […]

Haukablaðið aðgengilegt á netinu

Haukablaðið Neglan sem kom út á dögunum er nú aðgengilegt á rafrænu formi. Í blaðinu eru m.a. viðtöl við Sigurberg Sveinsson, Hönnu Guðrúnu Stefánsdóttur, Aron Kristjánsson, Díönu og Ægi auk Birki Ívar.

Lykilleikur hjá stelpunum

Haukar fá Fylkisstelpur úr Árbænum í heimsókn í dag en þessi lið eru í fjórða og fimmta sæti N1 deildar kvenna. Leikurinn hefst kl. 16 á Ásvöllum og hvetjum við áhorfendur til að styðja við heimaliðið í þessum lykilleik en stelpurnar hafa unnið tvo síðustu leiki mjög sannfærandi. Haukar eru í 4. sæti deildarinnar með […]