Tap gegn Fjölni í æfingaleik

Arnar Gunnlaugsson skoraði í öðrum leiknum í röð fyrir HaukaFjölnir vann Hauka með tveimur mörkum gegn einu í æfingaleik sem fór fram í Egilshöll í kvöld. Var þetta annar æfingaleikur Hauka á undirbúningstímabilinu en sá fyrsti var gegn Víking Reykjavík.

Arnar Gunnlaugsson skoraði í þeim leik og gerði slíkt hið sama í kvöld þegar hann jafnaði metin i 1-1.

 

Bjarni Gunnarsson kom Fjölnismönnum yfir en Arnar Gunnlaugsson jafnaði metin fyrir Hauka. Það var svo Aron Jóhannsson sem skoraði sigurmark Fjölnis.