Haukastelpur töpuðu fyrir KR

Auður Ólafsdóttir lék vel í lokaleikhlutanumHaukastelpur töpuðu fyrir fyrnasterku KR-liði í kvöld 62-81. KR-ingar voru yfir eiginlega frá fyrstu mínútu og unnu góðan sigur á Ásvöllum.

Munurinn fór mest í 32 stig en ungu stelpurnar í Haukum stóðu sig vel í lokaleikhlutanum og minnkuðu muninn niður fyrir 20 stig en KR vann að lokum með 19 stigum.

Stigahæst hjá Haukum var Heather Ezell með 23 stig og Ragna Margrét Brynjarsdóttir skoraði 12 stig.

Hjá KR skoraði Margrét Kara Sturludóttir mest allra eða 34 stig.

Mynd: Auður Íris Ólafsdóttir skoraði tvær glæsilegar körfur í lokaleikhlutanum – stefan@haukar.is