Lykilleikur hjá stelpunum

Erna má gjarnan skora hraðaupphlaupsmörk af þessu tagi í dagHaukar fá Fylkisstelpur úr Árbænum í heimsókn í dag en þessi lið eru í fjórða og fimmta sæti N1 deildar kvenna. Leikurinn hefst kl. 16 á Ásvöllum og hvetjum við áhorfendur til að styðja við heimaliðið í þessum lykilleik en stelpurnar hafa unnið tvo síðustu leiki mjög sannfærandi. Haukar eru í 4. sæti deildarinnar með 10 stig eftir átta leiki en Fylkir er með sex stig eftir sjö leiki í 5. sæti. Með sigri í dag geta stelpurnar því skipað sér í sveit efstu liða og skilið hin liðin nokkuð eftir. Haukar unnu Fylki í fyrsta leik mótsins í október með tveimur mörkum 23-25.