Tveir Hafnarfjarðarslagir framundan í handboltanum

HaukarÍ dag var dregið til undanúrslita í Eimskipsbikarkeppni karla í handbolta og fáum við Haukar nágranna okkar í FH í heimsókn í Schenckerhöllina að Ásvöllum. Áætlað er að spila leikinn þann 13.febrúar næst komandi. Fjórum dögum fyrr, 9. febrúar fáum við FH-inga hins vegar í heimsókn í N1-deildinni þannig að tveir Hafnarfjarðarslagir eru framundan hjá strákunum.

N1-deildin rúllar fljótlega af stað eftir hlé vegna Evrópumótsins í handbolta og eiga Haukar leik við Valsara í Vodafonehöllinni að Hllíðarenda þann 2.febrúar, er það fyrsti leikur liðsins í rúman mánuð eða síðan 28. desember sl. þegar Haukar lögðu FH af velli í úrslitaleik Deildarbikarsins.