Haukar – FH á morgun í N1 deild kvenna!

HaukarHaukar og FH mætast á morgun, laugardag í N1-deild kvenna í handbolta kl.16:00 í Schenckerhöllinni að Ásvöllum. Leikurinn er báðum liðum mikilvægur í baráttunni um sæti í 6-liða úrslitakeppni sem fram fer í vor og auðvitað er hann einnig mikilvægur að því leiti að hér er að sjálfsögðu um að ræða nágrannaslag af bestu gerð og þá viljum við alltaf vinna! Stelpurnar okkar þurfa á stuðningi okkar að halda og því er nauðsynlegt að fjölmenna á Ásvelli á laugardaginn og hvetja stelpurnar til sigurs!