Að loknu Herrakvöldi Hauka

HaukarUndirritaður vill færa þeim Úlfari Eysteinssyni og hans félögum á 3 frökkum þakkir fyrir FRÁBÆRAN mat á Herrakvöldiu Hauka sem haldið var í kvölld. 

Tel mig tala fyrir munn allra þeirra sem tóku þátt í Herrakvöldi Hauka í kvöld, hvalkjötið sem fram var borið í kvöld var hreint listaverk hvað bragð og framleiðslu áhrærir. Þeir sem ekki mættu á kvöldið misstu af miklu!i

Vil einnig þakka Kristjáni Loftsyni í Hval hf fyrir að hafa látið Haukum í té slíkt úrvals kjöt til þeirrar sælkeraveislu sem haldin var í kvöld.

Þá má ekki gleyma Jóhannesi eftirhermu sem skemmti mönnum vel og fékk hláturtaugar Haiukamanna til að virka vel. 

Vonast til að áframhald verði á slíkum veislum hjá Haukum!

Takk fyrir mig!

Samúel Guðmundsson 

formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka