Tekst Norðanstúlkum að stöðva sigurgöngu Hauka í Olís deild kvenna?

HaukarÁ morgun laugardag fer fram viðureign Hauka og KA/Þór í Schenkerhöllinni.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er mikilvægt að allir komi og styðji okkar stelpur til sigurs. 
Liðin áttust við í október en þá höfðu Norðanstúlkur sigur 25-24 en Haukar höfðu leitt mestallan leikinn en misstu einbeitinguna  á síðustu metrunum.

Haukar eru í harðri baráttu um að vinna sér sæti í úrslitakeppninni í vor þar sem 6 efstu liðin munu berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar eru þessa stundina í 6.- 8. sæti og skiptir þessi leikur því miklu máli upp á framhaldið. 
Við hvetjum alla til að koma og standa við bakið á okkar liði.
 
Áfram Haukar!