ÍR – Haukar í kvöld kl. 19:00 í Austurbergi

HaukarHaukarnir fara í Breiðholtið í kvöld og mæta þar sterku liði ÍRkl. 19:00 í íþróttahúsinu Austurbergi.

Þetta er fyrsti leikurinn eftir EM og verður því áhugavert að sjá hvernig strákarnir koma undan þessu langa fríi sem verið hefur á deildinni.

 Strákarnir sitja á toppi deildarinnar með 17 stig. ÍR eru í 6. sæti með 10 stig og geta með sigri sett pressu á toppliðin. Haukarnir mæta með fullt lið og eru lengi búnir að bíða eftir þessum leik.

Nú er bara að drífa sig á skemmtilegan handboltaleik og hvetja Haukana til sigurs og áframhaldandi veru á toppi deildarinnar.