Snæfell – Haukar í Dominos deild kk í kvöld

HaukarMfl. kk. í körfu mun leggja leið sína á Stykkishólm í kvöld og etja kappi við Snæfellinga kl. 19:15 í Hólminum.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Snæfell situr í 8 sæti með 5 sigra en Haukar sitja í 6-7 sæti með 7 sigra. Með sigri geta Haukastrákar skilið sig frá Snæfellingum og farið að einbeita sér að því að ná góðu sæti fyrir úrslitakeppnina.

 Baráttan um sæti í úrslitakeppnina hefur aukist gríðarlega núna á nýju ári og hafa ÍRingar og Borgnesingar unnið tvo mikilvæga sigra og hafa bæði unnið 4 leiki.

Haukarnir hafa ekki sýnt sitt rétta andlit í síðustu þrem leikjum og því er tími til kominn að strákarnir allir spýti ærlega í lófana og sýni sitt rétta andlit og komi með sigur til baka.