Herrakvöld Hauka 2014

Herrakvöld Hauka verður haldið laugardaginn 1. febrúar í hátíðarsalnum á Ásvöllum. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00.

Mikið verður lagt í kvöldið, eins og síðustu ár.  Úlfar Eysteinsson mun sjá um að framreiða glæsilegt veisluborð, Pétur Jóhann mun sjá um skemmtiatriði og auðvitað mun happdrættið verða á sínum stað, auk annarra skemmtiatrið sem munu verða kynntar er nær dregur.

Treyjur heimsfrægra leikmanna – UPPBOÐ.

Nú er tækifærið að koma og hitta gamla og nýja félaga og allar deildir félagsins hittist og ræði málin á skemmtulegu Herrakvöldi á Ásvöllum. Tökum kvöldið frá og fjölmennum. Veislustjóri er íþróttafréttamaðurinn fyrrverandi Samúel Örn Erlingsson.

Verð er kr. 7.500

Skemmtinefndin.