Taplausir í deildinni.

Það tók Hauka 2 ekki langan tíma að komast aftur á sigurbrautina eftir naumt tap gegn HK í bikar á miðvikudagskvöldið. Við áttum leik í deildinni tveim dögum síðar gegn HR. Bikarleikurinn sat eitthvað í mönnum þar sem aðeins átta leikmenn voru klárir í slaginn. Voru menn á einu máli, aðeins sigur kæmi til greina. Má segja að þetta hafi verið leikur sóknar frá upphafi til enda.

Við vorum yfir í hálfleik 14-17. Ekki var slakað á í seinni hálfleik hvað sóknarleik varðar. Lokatölur 34-38 fyrir okkur. Sigurinn var aldrei í hættu þar sem við leiddum allan leikinn frá upphafi til enda. Liðseigandinn númer tvö setti 12 í þessum leik og Jason var með 10 stykki.
Haukar 2 eru því taplausir í deildinni til þessa með fjóra sigra eftir jafn marga leiki.