Haukar-Afturelding mfl.karla

Það var ekki burðugur boltinn sem boðið var uppá þegar strákarnir okkar sigruðu Aftureldingu 30-25 á Ásvöllum í dag.
Leikurinn var jafn í byrjun fyrri hálfleiks en gestirnir sigu síðan framúr og náðu fimm marka forskoti 6-11. Haukar náðu að laga stöðuna og í hálfleik var staðan 11-13. Í byrjun seinni hálfleiks tóku strákarnir okkar sig aðeins á og breyttu stöðunni úr 11-14 í 19-16 og héldu forystunni eftir það.

Þó leikurinn væri ekki góður, voru stigin tvö frábær.