Stjarnan – Haukar mfl.karla

Haukarnir lögðu leið sína í Garðabæinn í kvöld og áttu heldur betur góðan dag og hreinlega völtuðu yfir heimamenn og komust í 13-1 og staðan í hálfleik var 25-6, hreint ótrúlegar tölur. Endaði leikurinn með 26 marka sigri okkar manna eða 46-20. Allir fengu að spila og var þessi sigur góður fyrir komandi lokaátök, því næst er það Fram og síðan ÍR og KA. Markahæstur var Jón Karl með 11 mörk. Valur og ÍR töpuðu sínum leikjum þannig að við eigum ennþá góða möguleika á titlinum. Það er ljóst að spennan verður mikil á þessum lokaspretti.

Valur á eftir ÍR, KA og HK
KA á eftir HK, Val og Hauka
ÍR á eftir Val, Hauka og Stjörnuna
Fram á eftir Hauka, Stjörnuna og Gróttu/KR

Nú verða allir að mæta þessa þrjá leiki og sýna strákunum stuðning.

Stjarnan-Haukar mfl.karla

Strákarnir töpuðu 30-27 fyrir Stjörnunni í Ásgarði í dag. Staðan í hálfleik var 17-10 fyrir heimamenn og það var ekki fyrr en í síðari hluta seinni hálfleiks sem strákarnir okkar fóru að taka á og minnkuðu munnin í eitt mark. Það dugði ekki til og ósigur staðreynd.

Það þýðir samt ekkert að gefast upp. Næsti leikur er við ÍBV á þriðjudaginn kl. 19.15 á Ásvöllum. Nú þjappa Haukamenn sér saman og styðja við bakið á strákunum.