Stefán Huldar kominn heim

Markvörðurinn Stefán Huldar Stefánsson hefur gert samning við Handkanttleiksdeild Hauka. Stefán Huldar kemur til Hauka frá HK þar sem hann hefur verið síðustu ár en hann hefur einnig leikið með Gróttu, Fjölni og Víkingi. Stefán sem er uppalinn Haukamaður lék síðast með Haukum 2011 þegar hann lék 5 í úrvalsdeildinni og er því kominn aftur heim á Ásvelli.

Fyrst um sinn verður Stefán lánaður til Gróttu þar sem hann mun leika á næsta leiktímabili og því verður einhver bið á því að sjá hann aftur í Haukabúningum.

Haukar bjóða Stefán velkominn aftur í Hauka og sömuleiðis góðs gengis með Gróttu á næsta tímabili.