Bjarni og Ingvar stýra mfl. kvenna

F.v. Ingvar Guðjónsson, Bjarni Magnússon og Bragi Magnússon

Fyrr í dag var gengið frá ráðningu á þjálfurum fyrir mfl. kvenna n.k. vetur. Bjarni Magnússon verður aðal þjálfari og Ingvar Guðjónsson verður honum til aðstoðar. Er samningur þeirra til næstu tveggja tímabila.

Bjarni og Ingvar þekkja vel til á Ásvöllum en báðir hafa þeir þjálfað liðið áður. Bjarni stýrði liðinu frá 2011 til 2014 og varð liðið bikarmeistari árið 2014 og lék til úrslita tímabilin 2011-2012 og 2013-2014. Hann var einnig aðstoðarþjálfari liðsins í vetur. Ingvar var þjálfari liðsins frá 2015 til 2018 og stýrði liðinu m.a. til Íslandsmeistaratitils vorið 2018. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem þeir þjálfa saman. Ingvar var aðstoðarþjálfari hjá Bjarna og Bjarni svo aðstoðarþjálfari hjá Ingvari.

Bjarni var aðstoðarþjálfari mfl. karla og kvenna s.l. vetur en nú verður hann eingöngu með kvennaliðið. „Ég var á báðum vígstöðvum síðasta vetur en það var ljóst að þegar ég tók að mér aðalþjálfara starf mfl. kvenna þá gat ég ekki verið með karlaliðinu. Ég er mjög stoltur að taka við þessu liði. Ég þekki þær mjög vel og spenntur að hefja undirbúning sem fyrst.“

Ingvar er búinn að þjálfa yngri flokka hjá Njarðvík síðustu tvö tímabil en ásamt því að vera aðstoðarþjálfari mfl. kvenna stýrir hann stúlknaflokki næsta vetur. „Ég er mjög ánægður að vera kominn aftur til Hauka. Við erum með flottan hóp og það er mikil tilhlökkun að geta hafið æfingar.“

Bragi Magnússon, formaður kkd. Hauka, hafði þetta að segja um ráðningu þeirra Bjarna og Ingvars. „Það er mikil ánægja hjá félaginu að fá Bjarna og Ingvar til að stýra liðinu næsta vetur. Við væntum mikils af þeirra starfi. Þeir þekkja vel til á Ásvöllum og hafa starfað saman áður og erum við spennt að fylgjast með liðinu næsta vetur.“

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…