Gleðilegt sumar!

Kæra Haukafólk, óskum ykkur öllum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn. Nú styttist senn í að allt íþróttastarf hefjist á ný hjá félaginu. Við höfum verið dugleg að hlýða Víði og höldum áfram að fara eftir þeim reglum sem þríeykið góða leggur okkur til á degi hverjum.
Það er hins vegar engin ástæða til að ætla annað en að Ásvellir iði af lífi að nokkrum vikum liðnum.
Fögnum sumri, njótum þess að vera til og verum góð hvert við annað.

Áfram Haukar!