Staðan í Sao Bernardo-Haukar
Þá er leikurinn hafinn og staðan 3-1 eftir 5 mín.
Staðan er 5-5 eftir 10 mín.
Eftir 17 mín. er staðan 6-7.
Staðan eftir tæpar 22 mín. er 10-9.
Það er kominn háfleikur og staðan er 13-11. Heimamenn hafa meiri áhuga á leiknum en okkar menn. Þó svo við hér heima höfum enga trú á að þeir tapi með 15 mörkum skulum við senda þeim góða strauma og vona að þeir fari í seinni hálfleikinn af fullum krafti og klári leikinn með stæl.
Þá er seinni hálfleikur byrjaður og staðan er 16-15 eftir 7 mín.
Staðan 18-16 eftir 14 mín.
Staðan er 20-17 eftir 23 mín.
Leiknum er lokið 24-20 með sigri Bernardo. Okkar menn tóku ekki á að fullu og áttu frekar dapran leik. Hitinn var gífurlegur, 28 átta stiga hiti úti og engin kæling í höllinni og var hún líkust gufuklefa. En þrátt fyrir tapið er niðurstaðan sú að draumurinn hefur ræst og við erum komin í MEISTARADEILDINA. Til hamingju strákar og til hamingju Haukar.
