Haukar-GróttaKR mfl.kvenna
Góður sigur hjá stelpunum er þær unnu GróttuKR 31-26 í fyrsta leik þeirra á Íslandsmótinu á Ásvöllum í kvöld. Þær voru lengi í gang og það var ekki fyrr en í seinni hálfleik sem þær náðu yfirhöndinni. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, gestirnir þó oftast fyrri til að skora en þeir náðu mest 2ja marka forskoti en okkar stelpur náðu alltaf að jafna og komust tvisvar yfir undir lok hálfleiks 12-11 og aftur 13-12 sem voru hálfleikstölur. Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og náðu góðu forskoti 17-13 sem þær juku í 24-17. GróttaKR náði að minnka muninn í lokin í 31-26.
Ramune var markahæst með 12 mörk.
Glæsilegur sigur og fyrstu tvö stigin komin í hús.
