Nýir leikmenn mfl.kvenna

Tveir öflugir leikmenn frá Litháen hafa gengið til liðs við mfl. kvenna. Þær heita Ramune Pekarskyte og Kristina Matuzeviéiúte og spila þær með liðinu næsta vetur. Ramune er rétthent skytta (algjör sleggja) og er í landsliði Litháen. Kristina er markmaður og spilaði með unglingalandsliði Litháen.

Við væntum mikils af þeim stöllum og verður koma þeirra góður styrkur og stuðningur fyrir ungu stelpurnar okkar og skemmtileg viðbót fyrir “gömlu druslurnar” okkar. Þær eiga örugglega eftir að gera gott lið ennþá betra og bjóðum við þær velkomnar í Hauka.