Sao Bernardo

Einu upplýsingarnar sem heimasíðan hefur um Sao Bernardo, liðið sem Haukar drógust á móti, er að liðið spilar í portúgölsku 2. deildinni. Strákarnir ættu því að eiga góða möguleika að komast áfram. Ef það gengur eftir munu Haukar spila í B-riðli en þar eru stórliðin Barcelona og Magdeburg og einnig Vardar Skopje frá Makedoníu.

Núna er málið að hugsa um leikinn við Sao Bernardo og klára það dæmi og þá er Meistaradeildin orðin að veruleika fyrir okkur.