Haukagolf 2003

Golfmót Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldið föstudaginn 15. ágúst nk. á hinum glæsilega golfvelli Keilis á Hvaleyrinni.

Ræst verður út milli klukkan 11.00 og 15.00, og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega. Nauðsynlegt er að panta rástíma í golfvöruverslunni í síma 565-3360, en ekki er hægt að bóka á Netinu. Keppnisgjald er kr. 2.000,00.

Aldurstakmark er 16 ára og eldri. Keppt verður um Rauða jakkann ásamt fjölda annarra glæsilegra vinninga og nándarverðlaun verða veitt á par þrjú brautum. Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni. Keppendur með forgjöf 28-36 keppa á rauðum teigum.

Verðlaunaafhending fer fram í golfskálanum á Hvaleyrinni að lokinni keppni.

Haukafélagar eru hvattir til að taka þátt í mótinu og hitta gamla félaga í góðum félagsskap við iðkun hinnar göfugu golfíþróttar.

Undirbúningsnefnd
Hauka í holu